23.8.2007 | 00:25
Guffí japlar ekki lengur Gajol!
Hermann Kristinn Karvelsson kom öllum íþróttaheiminum í opna skjöldu þegar hann hélt blaðamannafund í dag í Sæluhúsinu í Kerlingarskarði og tilkynnti opinberlega að hann væri kominn til Chelsea frá 3. deildar liðinu Snæfelli í Stykkishólmi. Þar sem ég var sá eini á bíl með fjórhjóladrifi þá var ég eini blaðamaðurinn sem komst á fundinn og gat því tekið mér góðan tíma til að spjalla við Hermaurinn. Aðspurður sagði Hemmi að áhugi Chelsea á sér hafi kviknað eftir að hann sýndi baneitraða vinstri fótinn sinn í leik gegn Afríku United og ef óminnishegrinn er ekki að hrjá mig þá vann Snæfell þann leik 4-0, mikið að þakka hnitmiðuðum sendingum hans Hermanns. Hemmi bætir svo við að Peter Kenyon sjálfur hafi svo mætt á leikinn um Dönsku Daga helgina til að skoða hann persónulega og stóð hann sig svo djöfulli vel í óheppnis 0-10 tapi að Peter bauð samninginn strax, enda er Arjen Robben svo gott sem farinn frá Chelsea og vantar því góðan vinstri fót á kantinn hjá þeim.
Hemmi er hvergi banginn við að fara í þennan stóra klúbb því hann er vanur mikilli pressu. Fyrir þá sem ekki vita þá er hann spilandi þjálfari hins stórkostlega meðalgóða liðs Brokeyjar í körfubolta. Þar er búist við árangri og engu öðru og því miklar væntingar daglegt brauð hjá honum. Hemmi sagði að Kringlukráin hafi reynt að yfirbjóða samninginn en það gekk ekki sem skildi.
(Mynd: Hemmi og Mourinho stilltu sér upp fyrir ljósmyndara
eftir undirritun samningsins á Stamford Bridge.
Hemmi segist hafa klásúlu í samningnum sem geri
honum kleift að halda áfram þjálfun Brokey í körfu)
Tenglar
Rafastugl
Áhugaverðar síður
Tenglar
335 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.